Fyndið:)
18.08.2008 13:37:45 / annae

Styrkjum öll gott málefni !!!

Jæja nú fer að koma að því ....

en ég ætla að hlaupa 10 kílómetrana í Reykjarvíkurmaraþoninu næstkomandi... langar mig að biðja sem flesta sem sjá sér fært að heita á mig og þar af leiðandi að styrkja gott málefni og gefa mér styrk í leiðinni :)

Þið farið inn á vefinn : www.marathon.is   finnið þar link sem á stendur " heita á keppanda " leitið að nafninu Anna... finnið mig og látið nokkrar krónur af hendi rakna... en ég hef valið styrktarfélag krabbameinssjúkra barna sem mitt góðgerðarfélag.
Það þarf alls ekki að vera há upphæð, því eins og við vitum öll þá gerir margt smátt eitt stórt og því væri það æðislegt ef sem flestir sjái sér fært að heita einhverju smá á mig :)



Ég valdi styrktarfélag krabbameinssjúkra barna í minningu frænku minnar, hennar Þurý föðursystur , en hún lést sjálf úr krabbameini fyrir tveimur árum síðan.
Er ég þess fullviss að hún hefði verið ánægð með mitt val... því ef það er eitthvað sem við getum gert til að hjálpa litlum saklausum börnum sem fá þennan sjúkdóm, þótt það sé ekki nema bara lítið ... að þá yrði hún glöð.

Með kærri kveðju og von um áheit ;)

kv Anna Dögg



» 4 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 23:27:31 / annae

Spennufall.....

jömm jömm fallega fólk nær og fjær, hvað seigiði svo ? 

Mín hefur ekki látið sjá sig hér í háa herrans tíð enda nóg búið um að vera og ég bara ekki í neinu bloggstuði ...... EN !!! nú þarf ég að monta mig og þar sem þetta er brilliant vettvangur til svoleiðis verka hef ég ákveðið að rita niður nokkur orð :) 

Fyrsta mont ..... það eru að verða 3 mánuðir since my sjúbering og minns búin að fara á þjóðhátíð og alles án nokkurra vandkvæða... ef það er ekki flott mont veit ég ekki hvað :D


Mont tvö .... ég skapaði án nokkurs vafa eina fallegustu mannveru sem litið hefur þennan heim og í fyrsta sinn líður mér eins og mömmu... alvöru mömmu ! sem er hreykin af því að vera alltaf og ávallt til staðar og virkilega geta það. Þetta mont hefur reyndar mikið með mont nr. 1 að gera .... en reyndar er ég nú líka að montast yfir snúllunni minni :)


Og allt er þegar þrennt er ..... nú hef ég lokið tveimur áföngum í fjarnámi sem ég sótti í sumar. Var í tveimur lokaprófum í dag og viti menn !! Ég fékk fokking ( afsakið orðbragðið ) ... tarraddaddaddammmm  NÍU í lokaeinkun í stærðfræði !!! jáhá viljiði pæla ... littla mizz veit ekki stæ og kann ekki stæ massar svo bara stæ, usssssssss kraftaverkin gerast og þau gerast sko ekki lítið þessa dagana ...ég er bara over the moon yfir þessu öllu saman :)
 


En nóg um mont og svona , því það er sko margt annað skemmtilegt að gerast í þessum heimi en mitt litla líf...  

.
.
Já en ég hef bara ekki um neitt annað að skrifa en þetta líf svo ég ætla bara að láta þetta nægja, kyssa rósina mína nótt nótt og fara að kúra.... Nú þarf ég víst að fara að vakna kl 06:00 á morgnanna svo ég massi nú þetta maraþon líka hehehehehe úúújeee beibí það er bara harkan sex ( því miður ekkert hörkusex híhí ) og engin vægð. 

knús á ykkur öll og vá hvað eiga 150 heimsóknir á dag að þýða.... ég er nú ekki svona vinsæl , það hlýtur að vera einhver villa í kerfinu :P

kv Döggin.

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2008 12:27:29 / annae

Ehhhh já þið hér ???

Nú jæja er mín búin að vera hræðileg ??? Það hraðast enn inn heimsóknir og ekkert að ske ÖSSSSSSSS.... Jamm veit vel uppá mig sökina hér, ég hef bara einhvernveginn ekkert fundið neina þörf til að tjá mig og svo er ég bara svo asskoti upptekin. En skal nú reyna að bæta ykkur þetta með smá línum :)

Þvílík lygasaga sem þetta blessaða líf mitt er nú orðin... er búin að vera edrú í einn og hálfan mánuð núna, sem er náttla bara mjög góður árangur, og ekki get ég sagt að ég sé það neitt breytast á næstunni... ég bara þori varla að trúa því hversu vel mér gengur, langar stundum að klípa mig og sjá hvort þetta sé ekki bara allt saman draumur og ég sé örugglega enn í helvítis svarnættinu sem líf mitt var farið að vera. Já það er til ótti við öllu, meir að seigja hamingjunni... Því hef ég ákveðið að vera bara ekkert að klípa mig og halda bara áfram að lifa í þessum líka fína draumi.... ég fer að sofa edrú og ég vakna edrú... góður draumur maður :D

Það er svolítið skondið frá því að seigja að mín er farin að syngja hástöfum á ný... einhversstaðar hafði ég týnt þeirri löngun, en núna góla ég bara endalaust og nýt þess í botn. Hver veit nema ég fái söngröddina aftur... já þessa alvöru muniði hehe ;) mar veit ekki ??

Jámm það er sko ekkert leiðinlegt að vera Döggin núna :) ......... en nóg um það raus .... held fólk fari bara að fá grænar á mér eftir allt þetta tal um hvað edrúlífið sé yndislegt... gleymi því stundum að fyrir ykkur er þetta bara ósköp eðlilegt thíhíhíhíhíhí :haha:

Og úr einu í annað...

Ég var að velta einu fyrir mér hér um daginn .... þessu endalausa brasi sem ástin vill oft vera. Öll þráum við ást og öll höfum við þörf fyrir hana, en hvers vegna þarf leiðin að henni að vera erfið ???
Eins og þið flest öll vitið þá eru eyrun mín stundum svolítið vinsæl þegar þörf fyrir tjáningu um ást er annars vegar og því finnst mér gaman að spá og spekúlera í þessum fræðum. Tek sem dæmi þessa svokölluðu leiki sem fullorðið fólk stundar... stundum jaðra þeir nú bara við að vera á við leik fimm ára barna, svo hrikalega hallærislegir og fyrirsjáanlegir eru þeir. En það virðist sem þeir krydda eitthvað upp á þessi nýju kynni og orsaka þar af leiðandi drama sem konum finnst svo alveg rosalega gaman að tala um. " Ég ætla ekki að hafa samband við hann, nú er röðin komin að honum " er t.d einn mjög vinsæll leikur.... auðvitað ættu báðir aðilar að sýna áhuga og hafa samband við hvort annað á svipuðum nótum. Öll vitum við að það sökkar feitt og er yfirleitt ávísun á engann áhuga hinum meigin ef við lendum í því að hringja .. ALLTAF, en mér er spurn.... afhverju ekki bara að hringja ef manni langar til að hringja og öfugt... svara ef manni langar til að svara. Veit ég um margar konur sem hafa beðið og beðið við símann, langað alveg rosalega til að heyra í honum, en vílað það fyrir sér að taka bara upp tólið sjálfar, allt útaf einhverjum leikreglum.
Einnig er það leikurinn þar sem við reynum að komast að því hvort hinn aðilinn sé með það sama í huga og við eða hvort það sé bara verið að leika sér að okkur. En sá leikur snýst um það að kryfja öll samtöl, allar hreyfingar, öll símtöl og bara allt sem snýst að samskiptum til mergjar... afhverju ætli hann hafi bara kysst mig á kinnina bless ?? eða afhverju var hann svona þurr við mig áðan?? ætli hann sé búinn að missa áhugann og svona getur þetta endalaust gengið... leikreglurnar þar virðast semsagt vera þær að bannað sé að vera bara hreinskilin og spyrja bara hreint og beint út hvar sá aðili stendur á þeim tímapunkti.
Samskipti kynjanna vilja oft vera mjög flókin og auðvitað tekur það tíma fyrir fólk að kynnast... en þá langar mig til að spyrja?
Afhverju ekki bara að njóta augnabliksins, njóta þess að hafa hitt áhugaverða manneskju og láta afganginn ráðast?
Ég veit ekki með ykkur , en ég held að okkur öllum sé ætlað eitthvað ákveðið í þessu lífi og ef ykkur er ætlað að finna ástina, þá á ekki að þurfa að velta sér endalaust upp úr öllu sem viðkemur henni, því þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta bara spurning um hamingju og að njóta samvista annara.... algjör óþarfi að heilinn bræði úr sér í leiðinni :)

( Tek það fram að undirrituð er enn single í dag og því ætti ekkert að taka hennar skoðanir bókstaflega... bara smá pæling á föstudagsmorgni ;) )

Fór með fjölskyldunni í æðislega útilegu um seinustu helgi enda þetta á nokkrum myndum úr henni og af henni dóttur minni sem stækkar og stækkar :)

http://s3.frontur.com/img/43553/20080706223006_14.jpg

http://s3.frontur.com/img/43553/20080706221541_9.jpg

http://s3.frontur.com/img/43553/20080707075948_5.jpg

http://s3.frontur.com/img/43553/20080707080605_11.jpg

http://s3.frontur.com/img/43553/20080707080705_12.jpg


Hafið það sem allra best... þangað til næst..

Kveðja Anna Dögg.

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 16:26:13 / annae

Littla mizz edrú !!

Jáááááháháháháháááá !!!

Í dag eru tvær vikur síðan ég kom heim af Vogi... allt hefur gengið ólýsanlega vel og ég er svo guðslifandi fegin að vera laus við bakkus !!

Ég er búin að hella mér út í sporin og AA-prógrammið, enda ætla ég nú ekkert að gera þetta með neinu hálfkáki:d , er í fjórða sporinu núna... það er drulluerfitt, en svo verður bara að vera. Verðlaunin verða pottþétt þess virði !! .........

Það er ansi fyndið hvað mér finnst gaman að vera edrú... allt í einu er mín bara farin að ganga Esjuna og farin út að skokka, vakna klukkan sjö á morgnana "" EKKI morgunfúl "" og annað í þeim dúr. Ef þið hefðuð sagt þetta við mig fyrir mánuði síðan hefði ég svooo hlegið upp í opið geðið á ykkur hehehe :haha: En svona er lífið.... það virðist sem við fáum ekkert alltaf um það ráðið hvert það tekur okkur.

http://a208.ac-images.myspacecdn.com/images01/15/l_02e896ce0135f03d9f1d9b020585748f.jpg

Á toppi Esjunnar 11 dögum eftir meðferð ....

Skohhh þetta gat hún ;)

knúúússss í botn !!! 8)

kv Döggin.

» 9 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 00:52:34 / annae

Farin ...

Jæja fallega fólkið mitt ..... þá er Döggin loksins að verða heilbrigð á ný :) Loksins !!!!!! 

Óskið mér góðs gengis :)

Vogur hér kem ég og vertu nú góður við mig ;) 

Knúúússssss og kossar á ykkur öll... sendið mér góða strauma, ekki veitir af !!!

kær kveðja Anna Dögg

» 11 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 14:50:13 / annae

Eigum við að ræða þetta !!!!! ???????????

Ég á mjög erfitt með að fyrirgefa minni ástkæru bestu vinkonu fyrir að yfirgefa mig og halda á leik Liverpool - Arsenal án mín fyrir stuttu....

En henni er sko fyrirgefið þar sem hún er búin að lofa mér að koma með mér þegar litla skottið sem hún ber undir belti er komið í heiminn :D

Kræst kona!!!!! Djöfull hvað ég öfunda þig ( ehhh s.s af Liverpool leiknum.... ekki að meiga ekki drekka bjór hehehe ;) )
http://a695.ac-images.myspacecdn.com/images01/81/l_afa6df147c57d9411f7d5c15309593c6.jpg
 
Ussss viljiði sjá ...þetta er bara svo falleg sýn..... sævar í augum Dagný..!!!!! ( ekki mínum þannig hehe :P ) og Liverpool fokking leikur í mínum....

Akkuru var ég ekki að halda á þessum borðum !!!!

http://a138.ac-images.myspacecdn.com/images01/67/l_1685a29eb50b04243db85665ba64efc1.jpg

En sonna er þetta bara.........

Já BJARKI!!!!!!!!!!!!! skuldar mér svoooo feitt ferð á leik.... Stoke vs ?

Usssss eins gott að strákurinn standi við sitt hehe .....

Annars er mar nú bara nýkomin heim frá Barcelona beibííííí !!! Þvílík snilldarferð og ég get ekki annað sagt en að hún hafi verið umvafin ævintýrum þessi helgi. Ég gleymdi nú samt að vera óþekktarangi...... ánægð með það samt ... var alltaf vöknuð fyrir allar aldir .... og búin að fara margar, margar ferðir á bensínstöðina þegar stelpurnar vöknuðu hehe .... En á móti kemur að minnz fór oft snemma í bólið, kannski ekki alveg það skemmtilegasta .... en þessi litli líkami þolir kannski ekki alltof mikinn bjór thíhíhí..:D

Er loksins búin að fá nýja rúmið mitt :D ........... Ussssss já mar !!!! það er geggjað.... ohhh ekkert smá kúl að geta valið alla fítusa í rúmið.. s.s styrkleikann, liti og alles.... Ég svaf svoooo vel í nótt ..... kannski þessvegna sem ég er svona hress hehe :)

Hey já svo ég láti ykkur nú öll vita þá er ég orðin forfallinn fótboltasjúklingur....... Liverpool er liðið mitt og ef einhverjum dettur í hug að hitta mig í Manchester United treyju eins og Böddi gerði um daginn þá er sú afsökun að það sé laundrydray ekki tekin gild !!!!! Hann var bara heppinn kjáninn að ég hafi verið í vinnunni........... Ussss hann hefði sko fengið bjórbaðið beint framan í sig ......... Fruuuuuuuuuuuuussssssssss :P

úffff allt of mikið að gera núna... gamla fólkið og Glæsibær þarfnast umhugsunar ;)

knúúúússss kv Döggin


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 20:01:59 / annae

Mont.is

Halló Halló ...

Nenni nú ekki að blogga neitt....

Svo þetta verður montfærsla bara:haha:

Til hamingju með eins árs ammælis sætu Daltonstrákar.... ( hehe einmitt þegar ég skrifaði þetta kemur Halló heimur í útvarpinu;) )


já svo á ég fallegasta barn í heimi ... finnst ykkur þetta ekki falleg mynd :)


Svo ætla ég líka að monta mig af því að vera að fara til Barcelona eftir 4 daga með Rakel sjúkkulaði og Írisi kjútípæ.... úffff já Barcelona baby :D

Monta mig yfir að ég er í æðislegri vinnu og seldi heil ellefu stykki gleraugu.... thank jú verý much .... í dag..... Sölumaður Íslands án vafa híhíh:haha:

Kom því loksins í verk að tæma þessa fínu ferðatösku sem ég er búin að búa í og er að vinna í að koma okkur fyrir :)

Svo ætla ég bara að monta mig yfir að ég á bestu foreldra, fjöslkyldu og vini í heimi !!! 

Lov jú öllsömul !!!

knús kveðja Döggin.


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 18:07:12 / annae

Góður :P

Kona fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni.
Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið?  Út úr lampanum steig andi.  Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár óskir uppfylltar.

Andinn svaraði: ' Neeei--- vegna verðbólgu, stöðugs samdráttar, lágra launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um allan heim, get ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú ? '

Án þess að hika sagði konan : ' Ég óska friðar í Mið-austurlöndum. Sérðu þetta kort ? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við annað.'

Andinn leit á kortið og hrópaði : ' VVVWaaaááááá, er ekki í lagi með þig manneskja ! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára. Ég bý yfir miklum mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki ! ' ' Ég held að þetta sé ekki framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. '

Konan hugsaði sig um augnablik og sagði svo: ' Okey,  ég hef aldrei getað fundið rétta manninn, þú veist :  sem er tillitsamur, skemmtilegur, finnst gaman að elda, hjálpar til við að þrífa húsið, er góður í rúminu, semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf að horfa á íþróttirnar og er mér trúr. Já, það sem ég óska mér er : Góður maður ! '

Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði : ' Láttu mig sjá þetta fjandans kort ' !!!!
http://photos-g.ak.facebook.com/photos-ak-sf2p/v232/36/46/680487292/n680487292_499438_8442.jpg

Jahhh stelpur ... dream on !!! muahahahahah:haha:



» 5 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 21:15:22 / annae

já nei jú ha já ok .....

Ussss ég þvílíkt öfundsjúk núna út í Dagný mína hina Döggina... en haldiði ekki að ungfrúin hafi skellt sér til Englands á leik Liverpool Arsenal núna um helgina... þvílíkt brill að gera þetta, var víst mesta snilld ever !!! trúi því endalaust, enda draumur að upplifa svona leik LIVE.... þarf nú ekki að taka fram að Liverpool vann... enda ættu allir að vita það núna, ég er ekkert smá ánægð fyrir hennar og Sævars hönd !!! það að liðið hans vann var auðvitað hápunkturinn...
Já Dagný mín .... þú manst hvað við töluðum um , við eigum svo pottþétt eftir að gera þetta einhverntímann ;) Lov jú og velkomin heim... :)

Allt að gerast í lífi vinkvennanna núna .... langar að óska Rachelinni innilega til hamingju með hina fjóru fræknu sem litla miss Jasmín kisulíus ól í gær :) en hvað það er ánægjulegt að allt gekk vel hjá kisumömmu ... ég og Emilía Björt eigum sko svooo eftir að koma í heimsókn til að sjá litlu undrin. Ohhh ég elska kettlinga... svo krúttlegir... ætla að sleppa því að monta mig af því þegar ég var næstum-kisumamma.... örugglega allir búnir að heyra þá sögu híhíh

Ég er eiginlega komin á það núna að fara í fjarnám í Stærðfræði í sumar... myndi henta vel... og vinnan mín bíður mér upp á að læra í vinnunni .. þvílík snilld !!! elska þessa vinnu eða kannski frekar hana Gunnu sem er eiginlega bara bestust að öllu leyti. Það eru sko alls ekki allir vinnuveitendur sem myndu leggja það til að maður væri að sinna sjálfum sér "þannig séð" í vinnunni. já hún er æði .. það verður sko ekki tekið af henni !!

Emilían mín er hjá pabba sínum núna... en Böddi ætlar að stela henni af mér í 3 daga úffff... :) Það er yndislegt hvað við erum samstíga í uppeldi dóttur okkar og að hún fái að njóta okkar beggja svona semi 50/50....!!! þótt ég sakni hennar ógurlega þá veit ég að ég má ekki vera eigingjörn né taka mínar þarfir fram fyrir hennar. 
Það þarf tvo til að búa til börn og barn þarf báða sína foreldra án nokkurs vafa... guð ég er orðin 26 ára gömul og ég veit ekki hvað ég gerði án foreldra minna thíhíh

Ég fékk að hitta litla gaur Geirsson í dag... þvílíka krúttið :) ..... innilega til hamingju kæru foreldrar Helga og Geir :)

Ætla að reyna að fara í herbergið okkar Emilíu næstu helgi... þar sem hlutirnir hafa breyst þá er kominn tími á að ég persónugeri þetta aðeins fyrir okkur og að ég hætti að lúlla á bedda... 

Er búin að vera svolítið upp og niður síðustu daga... held það sé nú bara útaf í hversu lausu lofti ég er búin að vera undanfarið... allt breytt núna svo það er kominn tími á að finna sig inn í þessum breyttu tímum ekki satt :) ??

Líður yndislega hér hjá foreldrum mínum og hlakka til að geta tekist á við nám og sætt mig við hversu umbreytt lífið mitt er.... það hefur allt tilgang í lífinu er það ekki :)http://photos-h.ak.facebook.com/photos-ak-sf2p/v232/36/46/680487292/n680487292_499439_8880.jpg

En nóg um það... here´s to my life :D

cheers litla mizz Dúgg






» 7 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 16:00:09 / annae

Barcelona - EEEYYYAAA !!!

Áætlaður lendingartími... 17 dagar og sex tímar ;)

Þessar þrjár eru að fara til Barcelona

http://a453.ac-images.myspacecdn.com/images01/76/l_e1bf3da2ca0b0b9cf53b9ebc6b1729fc.jpg

En ætti virkilega að hleypa þeim úr landi

http://a239.ac-images.myspacecdn.com/images01/97/l_325a8265c5b52ec6f54b0d90dd03ddf6.jpg

BAHHHHHH :haha:

Annars voru þessa myndir teknar í afmælinu hennar Írisar núna seinasta Laugardagskvöld... það var gígantískt gaman !!! Okkur var boðið upp á dýrindis kvöldverð að hætti Bigga og allt of sterka bollu að hætti Írisar.
Ég held að lagi veðurguðanna... Bahama hafi verið vel nauðgað og flest allir komust stóráfallalaust í gegnum þetta.

Flott upphitun stelpur... algjört æði ... úúújeee ;)

Yndislegt veður í dag... ég fór í opna skó í tilefni þess að sólin sé farin að ylja okkur. Já ég neita að trúa því að við eigum eftir að sjá meiri snjó þetta vorið :)

Ég fékk ekki inn í þennan blessaða skóla, en því var nú við að búast. Ég vissi alveg að stúdentsprófs er krafist, en það var bara ekki þannig í fyrra þannig að það sakaði ekki að reyna. Ég hef því ákveðið að drífa mig í að ná mér í þetta stúdenstpróf... er enn að skoða skóla og svona... hvað finnst ykkur?? Er ekki einhver skóli sem hefur breytt aldurssvið...?? það væri náttúrulega æðislegt ef ég væri ekki eina gamla kjellingin :haha: 

Jú jú það er alltaf best að hugsa.... Þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar. Mér var bara ekkert ætlað að fara til úgglandanna strax og það er líka bara í fínu lagi. Er einmitt nýbúin að fá inn á leikskóla fyrir Emilíu Björt og vá hvað ég held að pabbi hennar er feginn thíhí :lol:

Ég er annars á rosa góðum stað í lífinu núna. Hlakka til sumarsins og hef kynnst nýju fólki...

Langar líka að benda ykkur á að strákarnir mínir í Dalton hafa fengið tilnefningu til hlustendaverðlauna FM957... Sem bestu nýliðarnir. Kosning fer fram á www.http://visir.is.

Hafið það bara súper dúper fallega fólk... njótið þess að vera til og verið góð við hvort annað :)

knús Anna hin sísvanga súperstjarna;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 23:30:30 / annae

drúúúslúúúrrr

Við erum að tala um 50 - 80 heimsóknir á dag...... og skitin 2  komment ... 
hvur og hverjir eru að njósna um mig.... svara fólk... enda hef ég ekkert að gera nema að skammast yfir þessu hahaha :P

» 9 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 04:56:06 / annae

Vakna á nóttunni....

Þetta er svolítið týpiskt ég þessa dagana..... eða svona þegar ég er ekki með dóttur mína, ég er að vakna um miðjar nætur með lög á heilanum sem ég losna ekki við... núna er það James Blunt

Saw the world turning in my sheets and once again I cannot sleep.
Walk out the door and up the street; look at the stars beneath my feet.
Remember rights that I did wrong, so here I go.
Hello, hello. There is no place I cannot go.
My mind is muddy but my heart is heavy. Does it show?
I lose the track that loses me, so here I go.
And so I sent some men to fight, and one came back at dead of night.
Said he'd seen my enemy. Said he looked just like me,
So I set out to cut myself and here I go.
I'm not calling for a second chance,
I'm screaming at the top of my voice.
Give me reason but don't give me choice.
'Cause I'll just make the same mistake again.
And maybe someday we will meet, and maybe talk and not just speak.
Don't buy the promises 'cause, there are no promises I keep.
And my reflection troubles me, so here I go.
I'm not calling for a second chance,
I'm screaming at the top of my voice.
Give me reason but don't give me choice.
'Cause I'll just make the same mistake,
I'm not calling for a second chance,
I'm screaming at the top of my voice.
Give me reason but don't give me choice.
'Cause I'll just make the same mistake again.
Saw the world turning in my sheets and once again I cannot sleep.
Walk out the door and up the street; look at the stars.
Look at the stars fall down.
And wonder where did I go wrong.

Já Já veit þið hugsið bara.... 

hvur djöfulinn er að þessari ??? :) 

Amms hugsa það sama stundum......  ég ætti að fá vögguvísu frekar á heilann, 
kannski ég gæti þá sofið. 

Það er allavega á tímum sem þessum sem ég sakna þess að vera ekki í sambandi,,,

ætla nú samt að reyna að sofna aftur. Sjáum til hvort herra Blunt leyfi mér það..

Og já talandi um hann..... mig langar óskaplega að fara á tónleikana sem hann verður með hér á landi í sumar..   Einhver sem langar að koma með mér :)

Annars er það eitt lag sem ég er svo að meika textan við núna.... 

This world will never be
What I expected
And if I don't belong
Who would have guessed it
I will not leave alone
Everything that I own
To make you feel like it's not too late
It's never too late

Even if I say
It'll be alright
Still I hear you say
You want to end your life
Now and again we try
To just stay alive
Maybe we'll turn it around
'Cause it's not too late
It's never too late

No one will ever see
This side reflected
And if there's something wrong
Who would have guessed it
And I have left alone
Everything that I own
To make you feel like
It's not too late
It's never too late

Even if I say
It'll be alright
Still I hear you say
You want to end your life
Now and again we try
To just stay alive
Maybe we'll turn it around
'Cause it's not too late
It's never too late

The world we knew
Won't come back
The time we've lost
Can't get back
The life we had
Won't be ours again

This world will never be
What I expected
And if I don't belong

Even if I say
It'll be alright
Still I hear you say
You want to end your life
Now and again we try
To just stay alive
Maybe we'll turn it around
'Cause it's not too late
It's never too late
Maybe we'll turn it around
'Cause it's not too late
It's never too late (It's never too late)
It's not too late
It's never too late

Minnir mig svo á mig og einn sem er mér svoooo kær... 

Æhhh ég er væminn veit,

Knúúússss

og góða nótt :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 11:18:01 / annae

Vóóóó

Ég vaknaði í líka þessu snilldarskapi í morgun... það fór um mig svona yndislegur sumarfílingur.... nú get ég bara ekki beðið eftir sumrinu :haha: , heppna ég fæ nú smá forleik þegar ég, Rakel og Íris förum til Barcelona núna 25 Apríl.... þá verður nú komið gott veður á Spáni... úúújeee ;) ..... get ekki beðið eftir að smakka þennan bjór sem Rakel dásamar svo mikið... já ekki hissa eruð þið ?? híhíhí :lol:

Ég er orðin tónlistarfíkill þessa dagana... ég er ekki að grínast ég geng um með útvarp í veskinu hehe ... stilli svo tónlistina í botn í bílnum og rúnta um með allt í blasti .... svona eins og gömlu kallarnir og unglingarnir niður Laugaveginn. Ég er svolítið hallærisleg 26 ára kona, en mér er alveg sama. Ég er svo að fíla það að dilla mér í bílnum... svo er ég líka í svo góðu skapi þessa dagana... að þá eiginlega verður maður að vera svolítið gúffý stundum.

Hey já... eins gott að gleymi ekki að seigja ykkur frá fjórhjólsferðinni minni og Jónsa. Hvílík TÆR snilld er þetta !!!! Við fórum upp á Úlfarsfell og fengum útsýni yfir bókstaflega allt höfuðborgarsvæðið... með talið Mosfellsbæ :) Ég var nú svolítið hrædd fyrst , en þegar ég var farin að treysta tækinu, sitja þetta og svona... þá var GEGGJAÐ !!!
Næst langar mig upp á jökul á vélsleða... já ætla að fara í sumar pottþétt... kaupi mig bara með í svona túristaferð hehe.

Gerði líka margt og mikið af tjútti um helgina... fór einmitt á Dalton á Hressó á Föstudagskvöldið... GAMAN???....... JÁ  !!!! Böddi náttla flottastur, og auðvitað var svo gaman að hitta alla. Eðlilega sé ég mikið minna af þessu liði eftir skilnaðinn, en gott að það er ekkert vandamál við að mæta á Dalton ;)

Endaði svo líka á Hressó á Laugardagskvöldið... djííí mar er nú meiri ... usssss !!! En það var líka bara algjör snilld.

Sunnudagurinn fór svo í Laugar Spa og heimsókn til ömmu... yndislegt að sjá hana :) Ég ætlaði að vísu að fara með Emilíu Björt á Hesturinn og æskan sýninguna en hún datt uppfyrir því miður. Samt er nú ekkert erfitt að kynna hana fyrir hestinum... hestar út um allt hehe :)

hmmmmm hvað ætti ég að gera í hádeiginu... ??? Langar að fara eitthvert í hádeigismat, en ætli ég endi ekki bara heima hehe. Finnst svo leiðinlegt að fara eitthvað ein.. verð eiginlega að hafa deit.

En jæja sjáum nú til.... Jú það var eins og ég hélt... ég ER í vinnunni. Ætla að fara að þurka af... veitir ekki af.

Adios fallega fólk og veriði stillt..... knús og kveðja Anna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 17:39:58 / annae

Eigum við að ræða þetta???

Jææææja fallega fólk ...

Í fréttum er þetta helst... Daltonbræður og forsprakki þeirra Böðvar Rafn Reynisson eru án efa óheppnustu gaurar landsins...

Fréttatíma er nú lokið , aftur verða lesnar kvöldfréttir á slaginu sjö.

Já ég er eiginlega þess fullviss um að eitthvað á eftir að henda þessa blessuðu hljómsveit áður en ég kemst heim í kvöld...  en það er stranglega bannað að hafa það alvarlegt ( ekki að það skipti máli greinilega ) en ég ætla loksins að kíkja á Daltongigg... hef ekki farið lengi svo það verður æði pæði sæði úúújeee ;)

Annars er ekki mikið af mér að frétta eins og vanalega... Jónsi kemur og sækir mig eftir vinnu... ætlar að fara með mig á fjórhjól... já í alvöru !!!! Anna litla sæta og fína ætlar að skella sér á fjórhjól í fyrsta skipti. Verður örugglega hevý gaman :haha:  læt ykkur svo vita hvernig fór ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 19:57:56 / annae

Páskahelgin var klikk.... djíííí .....

Ómæ..... við erum ekkert að grínast með þessa páskahelgi !!!! Var svo illilega vel tekið á því að ég bara er enn orðlaus eiginlega. En svona er þetta single líf.... maður bara nennir engan veginn að hanga einn heima á meðan félagarnir eru úti að dansa:haha:  Ég allavega skemmti mér mjög vel.... mjög þreytt núna, en þess virði :) 

Gærkvöldið fullkomnaði svo helgina .... óóójááá !!!!!

Er annars bara í góðum gír ...... gott að komast í vinnuna í dag. Svona stutt frí eru góð, hefði örugglega verið erfiðara að koma sér af stað ef þetta hefðu verið fleiri dagar. 

Eins og þið hafið örugglega heyrt af .... þá lenti Böddinn minn í lífsháska á Laugardagskvöldið.... þessi drengur hann er ótrúlegur !!! Rokkari af guðs náð. Það eru sko alls ekki allir sem stíga upp í flugvél með 50 spor í hálsinum og nýbúinn að missa 2 lítra af blóði.... en svona er Böddinn. Hann lætur ekkert stoppa sig þegar tónlistinn er annars vegar. Ég var nú samt svolítið reið.... ( eða þá frekar hrædd ) um að hann skyldi gera þetta. Og hef ég heyrt að giggin voru bara flott. Usssss já ótrúlegur.... það verður ekki tekið af honum. 

Emilía Björt er hjá honum núna... veit að þau eru bara að hafa það kósý og örugglega er það líka besta meðalið... að fá stór knús frá músinni sinni :) 

Lífið er stór rússíbani hjá minni núna.... það er allt að verða Ga Ga eiginlega. síminn stoppar ekki og ég eiginlega hef ekki við því að svara fólki (strákum hehe)  á msn... Mikið hlýt ég nú að vera sæt og skemmtileg:haha:
En þetta er bara gaman.... alltaf gaman að daðra :) Samt er maður auðvitað ekkert að gera neina alvöru úr neinu..... ég ætla út muniði. Ætla sko ekki að skilja eftir einhvern hér sem ég þarf svo að sakna næsta haust. Sorry strákar mínir thíhíhí..... 

Heyrðu ungrú Rakel !!!! hvar ert þú búin að vera ??? Hvenær á að bóka flugmiðann fræga. Mig langar í þennan margumtalaða bjór og sjá sæta ítalann þinn. 

Mig langar líka í margt fleira... en það ætla ég bara að eiga við sjálfan mig;)

Já og Fanney.... við erum ekkert að grínast með þetta.... djöfull erum við ógeðslega HIPP OG KÚL... úúújeeee ( hehe einkahúmor8) )

Ég er svo að reyna að koma mér í stuð til að taka til hérna......... Niiiiiii ekki að gerast. 

Úfffff hvað ég þarf að fara snemma í háttinn.... Usssssssssssssss

en jæja allavega... bla bla bla bla bla ... búin að bulla nóg , hef þannig séð ekkert skemmtilegt að seigja . 

Veriði stillt á meðan ég ætla að vera óþekk.... og já ég má það thíhíhí;)



» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 79073
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti